Nýja deildin við Árbæ heitir Sandvík
Skólastofan sem bætt verður við leikskólann Árbæ er nú í smíðum á Stokkseyri og er gert ráð fyrir að stofan verði tekin í notkun 1. mars næstkomandi, jafnvel fyrr ef vel gengur.
Nýja deildin hefur fengið nafnið Sandvík en deildirnar sem fyrir eru í sumarhúsunum við Árbæ eru tvær í dag, Heiðarsund og Bátatjörn. Það er gaman að segja frá því að allt eru þetta örnefni í nágrenni leikskólans en Sandvík er í Ölfusá. Aðrar deildir Árbæjar eru Kringlumýri, Stekkjarlækjur, Kotatún og Fosskot.