Nýjar lóðir í úthlutun
Árborg auglýsir til úthlutunar nýjar lóðir í landi Bjarkar á Selfossi. Um er að ræða lóðir við Móstekk sem ætlaðar eru undir parhús og raðhús. Lóðirnar liggja að Suðurhólum og verða í nánd við nýjan skóla og leikskóla sem þarna rís. Upplýsingar um lóðirnar er að finna hér á vefnum
Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulags- og byggingarskilmála sem og aðrar upplýsingar sem máli skipta má nálgast hér á vefnum. Umsóknarfrestur til og með 28. ágúst 2020, lóðirnar verða afhentar skv. skilalýsingu 1. október 2020.