Nýr deildarstjóri skipulagsdeildar
Sveitarfélagið hefur lokið við ráðningu í starf skipulagsfulltrúa, sem jafnframt gegnir starfi deildarstjóra skipulagsdeildar. Alls bárust 9 umsóknir um starfið en 2 umsóknir voru dregnar til baka.
Eftir gagngera skoðun umsóknargagna og viðtöl við nokkra umsækjendur hefur Sigurður Andrés Þorvarðarson byggingarverkfræðingur verið ráðinn í starfið. Sigurður Andrés lauk B.S. prófi í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og M.Sc. í Byggingarverkfræði frá sama háskóla árið 2014.
Síðustu ár hefur Sigurður Andrés starfað á samgöngusviði Verkís hf. og komið að margvíslegum verkefnum tengdum vega- og gatnahönnun, hönnun á flughlöðum og akbrautum flugvéla, umferðarskipulögum, hjóla- og göngustígum, deiliskipulögum og skipulagsbreytingum. Áður starfaði hann hjá Almennu verkfræðistofunni ehf. sem veghönnuður á umhverfis- og skipulagssviði. Þá hefur Sigurður Andrés gegnt hlutverki verkefnastjóra í mörgum þeirra verkefna sem hann hefur unnið að í framangreindum störfum sínum.
Sigurður mun hefja störf 1. febrúar nk.