Nýr skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri
Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri frá og með 1. ágúst 2022.
Guðrún Björg hefur starfað við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri frá 2019, fyrst sem umsjónarkennari en sem aðstoðarskólastjóri frá 2020. Áður starfaði hún sem skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og þar áður sem framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu við Háskólann á Bifröst.
Guðrún hefur góða reynslu af störfum innan skólakerfisins og víðar ásamt því að leggja félagsstörfum sitt liðsinni. Þar má nefna knattspyrnudeild Skallagríms, foreldrafélög Grunnskólanna á Húsavík og í Borgarnesi ásamt því að sitja í stjórn Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands.
Guðrún lauk B.sc gráðu í viðskiptafræði og MIB gráðu í Alþjóðlegum viðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og tók kennsluréttindin við Háskólann á Akureyri.
Alls bárust sex umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.