Nýr skólavefur BES
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri er kominn með nýjan vef í loftið þar sem útlit hefur verið samræmt við vef sveitarfélagsins og upplýsingar auk aðgengis aðlagað að þörfum foreldra og annarra notenda vefsins. Unnið er að uppfærslu á upplýsingum og gögnum vefsvæðisins og stefnt að því að ljúka þeirri vinnu sem fyrst.
Vinna við aðra skólavefi, bæði leikskóla og grunnskóla er í gangi og verða þeir uppfærðir eftir því sem vinnunni vindur fram.
Það er von okkar að nýjir vefir komi til með að þjóna íbúum vel.