Nýtt klippikort 2023
Nýtt klippikort er orðið aðgengilegt fyrir alla með lögheimili í sveitarfélaginu
Í boði er að virkja allt að 200 kg á íbúð sem er hluti af sorpgjaldi íbúða
Klippikortið gildir til loka júní 2023 en þá tekur ný gjaldskrá gildi sem byggir á „borga þegar hent er“ og verður allur úrgangur gjaldskyldur á gámasvæðinu samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Klippikortinu er framvísað í síma á gámasvæðinu sem klippa svo af fyrir gjaldskildan úrgang. Notkun umfram 200 kg á tímabilinu er greidd samkvæmt gjaldskrá.
Athugið að setja þarf klippikortið í rafrænt veski eins og t.d. SmartWallet svo það virki.