Nýtt samræmt flokkunarkerfi í sorphirðu Árborgar 2023
Með síðustu breytingum á lögum um meðhöndlun úrgangs var komið á samræmdu flokkunarkerfi úrgangs yfir allt land.
Þetta er mikilvægt fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi og stórt framfaraskref þar sem sýnt hefur verið fram á að sérsöfnun á hráefni leiði til meiri og betri flokkunar.
Nýja flokkunarkerfið byggir á sérsöfnun á eftirfarandi flokkum við sérbýli:
- Pappír og pappi
- Plastumbúðir
- Lífrænn eldhúsúrgangur
- Almennt sorp
Mismundandi fyrirkomulag við fjölbýli:
Mismunandi fyrirkomulag verður við fjölbýli og fer útfærslan eftir aðstæðum og stærð fjölbýla hverju sinni. Meginmarkmið er að fjölga tunnum við fjölbýli eins lítið og hægt er en ílát við fjölbýli eru losuð oftar en við sérbýli.
Húsfélög eru hvött til að vera í sambandi við Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar sem mun fara með þeim yfir þær lausnir sem eru í boði og fá aðstoð við útreikning á fjölda íláta.
Hvað er framundan:
Tíðni á losun við heimili helst óbreytt og verður á 21 dags fresti við sérbýli. Sama gildir með fjölbýli að þar verður tíðni losunar óbreytt á 14 daga fresti.
Íbúar þurfa að gera ráð fyrir að hafa pláss fyrir fjögurra tunnu flokkun við sitt heimili og flokka allan úrgang í samræmi við það. Sveitarfélögum er skylt að nota samræmdar flokkunarmerkingar sem munu einfalda fólki við flokkun. Merkingarnar eru samnorrænar og mikið af innfluttum vörum frá Norðurlöndunum eru nú þegar merktar með þessum merkjum til að leiðbeina neytendum hvernig skuli flokka. Frekari flokkunarleiðbeiningar má finna á heimasíðu Árborgar og á heimasíðu Íslenska gámafélagsins sem er þjónustuaðili okkar.
Vinnu við verkið verður skipt þannig næstu mánuði:
Sveitarfélagið Árborg mun innleiða nýja kerfið á fyrri hluta næsta árs og bætist þá ný tunna á þitt heimili. Árborg mun afhenda nýju tunnuna í mars-maí og endurmerkja þær tunnur sem fyrir eru.
- Janúar-mars: Óbreytt flokkun eins og er í dag
- Mars-maí: Flokkun breytist þegar ný tunna er afhent íbúum og ber þá að flokka í fjóra flokka. Eldri tunnur verða endurmerktar.
- Ný gjaldskrá tekur gildi frá 1. júní 2023 sem byggir á fjögurra tunnu kerfi.
Rúmmálsleiðin:
Nýja kerfið byggir á svokallaðri rúmmálsleið og geta íbúar því ákveðið með stærð íláta hve mikill úrgangur er sóttur til viðkomandi heimila. Í dag hefur þetta verið í boði fyrir almennt sorp en verður útfært á fleiri flokka við þessar breytingar. Má þar nefna:
- Íbúar geta keypt tvískiptar tunnur t.d. pappír/plast eða almennt sorp/lífrænt
- Eldri ílát eru tekin uppí ný á afskriftarverði. Þ.e. tunnurnar eru afskrifaðar að fullu á 10 árum.
- Kostur við tvískiptar tunnur er að þær taka minna pláss en á móti er dýrara að losa þær.
- Grenndarstöðvar fá breytt hlutverk og taka við eftirfarandi flokkum:
- Glerkrukkum
- Járndósum og lokum
- Textíl
- Gjaldskylda verður á allan úrgang sem er gjaldskyldur á gámasvæðinu við Víkurheiði.
Tilkynningar verða sendar íbúum á samfélagsmiðlum og í formi sms þegar innleiðingin er í gangi í þeirra hverfi.
Allar frekari upplýsingar má fá hjá starfsmönnum Árborgar í Þjónustuveri eða á Mannvirkja- og umhverfissviði á Austurvegi 67.
Íbúar óska sjálfir eftir breytingum á tunnum á mínum síðum Árborgar og er stefnt að því að nýju valflokkarnir verði í boði frá 1. mars 2023.