Ölfusárbrú verður sandblásin í sumar
Vegagerðin vinnur nú að undirbúningi viðhaldsframkvæmda á brú yfir Ölfusá. Um er að ræða Sandblástur og málun stálgrindar undir brúnni. Gert er ráð fyrir að sandblása og mála alla grindina í aðalbrúnni sem er undir brúnni. Gerðar eru miklar kröfur til varna vegna ryks og málningar, þannig er gerð krafa um að sett verði net á brúna báðum megin sem eigi að taka við öllum óhreinindum og málningu. Til að koma ofangreindum vörnum fyrir þarf að gera brúna einbreiða í stuttan tíma þegar verið er að setja niður net þar sem ekki gönguleið, reiknað er með að sú vinna verði gerð á kvöldin þegar umferð er sem minnst.
Verktaka er ekki heimilt að vinna nema til kl. 20 á kvöldin við sandblástur og málningu vegna nálægðar við íbúðarbyggð og hótel. Verktími er áætlaður frá júní fram til 25 ágúst.
Hraði á brúnni verður tekin niður í 30 km/klst
þegar verið er að ganga frá vörnum annars 50 km/klst. Gert er ráð fyrir að gönguleið verði opin allann verktímann, þó með einhverjum truflunum.
Verktaki fær afnot af svæði við brúna fyrir tæki og vinnuskúra í samráði við Sveitarfélagið Árborg. Hann mun gæta fyllsta öryggis vegfarenda sem og uppfylla skilyrði sveitarfélagsins um frágang að loknu verki sem og snyrtimennsku á verktíma.
