Ráðning aðstoðarleikskólastjóra Goðheima
Anna Gína Aagestad hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri Goðheima.
Anna Gína er með B.Ed. próf í leikskólakennarafræðum og lýkur meistaranámi í stjórnun menntastofnana við Háskóla Íslands vorið 2021.
Hún hefur starfað sem verkefnastjóri útkennslu og Grænfánaverkefnisins „Skólar á grænni grein“ við leikskólann Álfheima á Selfossi frá árinu 2008 - 2018 og í leikskólanum Krakkaborg í Flóahrepp frá árinu 2018.
Anna Gína hefur einnig verið verkefnastjóri Gullanna i grenndinni sem er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla frá árinu 2012.
Alls bárust 3 umsóknir um starfið.
