Ráðning byggingarfulltrúa
Sveinn Pálsson hefur verið ráðinn byggingarfulltrúi hjá Sveitarfélaginu Árborg. Alls bárust 15 umsóknir um starfið.
Sveinn er með MSc próf í byggingarverkfræði frá Lunds Tekniska Högskola. Sveinn hefur starfað sem sérfræðingur hjá Mannvirkjastofnun, nú Húsnæðis- og mannvirkjastofnun frá haustinu 2018. Þar vann hann m.a. að innleiðingu, þróun og kynningu Byggingargáttar. Á árunum 2010-2018 var Sveinn sveitarstjóri Dalabyggðar og þar áður gegndi hann starfi sveitarstjóra í Mýrdalshreppi í átta ár.
Sveinn mun hefja störf 20. ágúst nk.