Ráðning teymisstjóra á fjölskyldusviði
Eftir gagngera skoðun umsóknargagna og viðtöl við nokkra umsækjendur var ákveðið að ráða Önnu Rut Tryggvadóttur í starf teymisstjóra barnaverndar.
Alls bárust 7 umsóknir en ein umsókn var dregin til baka. Þá var ákveðið að ráða Guðrúnu Svölu Gísladóttur í starf teymisstjóra ráðgjafateymis félagsþjónustu en þar báurst 5 umsóknir en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Anna Rut Tryggvadóttir, félagsráðgjafi, hefur starfað sem félagsráðgjafi hjá Sveitarfélaginu Árborg síðustu fjögur ár og hefur nýlokið diplómagráðu í fjölskyldumeðferð tilviðbótar við mastersgráðu í félagsráðgjöf.
Guðrún Svala Gísladóttir, félagsráðgjafi, hefur síðustu ár starfað sem forstöðumaður Klúbbsins Stróks og áður sem félagsráðgjafi hjá Sveitarfélaginu Árborg og hjá Kópavogsbæ. Hún er með M.A. gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf.