Rafrænt klippikort á gámasvæðinu
Búið er að virkja rafrænt klippikort til nota á gámasvæði Árborgar. Klippikortið innfelur allt að 400 kg á ári sem eru hluti af sorpgjaldi íbúða.
Kortið er sótt inn á Mínar síður og geta allir sem lögheimili hafa á viðkomandi fasteign sótt klippimiðann. Miðinn telur niður allt að 40 skipti. Lágmark er 10 kg í hvert skipti.
Klippikortinu er svo framvísað í síma á gámasvæðinu sem klippa svo af fyrir gjaldskyldan úrgang. Notkun umfram 400 kg á ári er greidd samkvæmt gjaldskrá.
Hér má sjá hvar miðinn er sóttur á Mínar síður. Setja þarf miðan í rafrænt veski eins og t.d. SmartWallet svo hann virki.