Samstarf Árborgar og HSu vegna smita í Sunnulækjarskóla
Í framhaldi þess að um 600 einstaklingar voru úrskurðaðir í sóttkví laugardaginn 3. október síðastliðinn hefur Sveitarfélagið Árborg og Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekið saman höndum í því stóra verkefni sem fyrir liggur vegna sýnatöku.
Eins og komið hefur fram í fréttum kom upp staðfest smit hjá starfsmanni í Sunnulækjarskóla og nemendum í 1. og 4. bekk. Eftir ráðleggingar frá rakningarteymi almannavarna lá fyrir að sjö árgangar skólans, um 550 nemendur í 1., 4., 6., 7., 8., 9. og 10. bekk ásamt Sérdeild Suðurlands - Setrinu og 50 starfsmönnum þyrftu að fara í sóttkví.
Sýnatökur HSu fimmtudaginn 8. október munu fara fram í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi sér um skimanir og þar sem um mikinn fjölda sýna verður að ræða vegna Sunnulækjarskóla mun Sveitarfélagið Árborg leggja til aðstöðu í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla.
HSu, Sveitarfélagið Árborg, Lögreglan á Suðurlandi og fyrirtæki eru einnig í góðu samstarfi um að finna heppilega staðsetningu og aðstöðu fyrir sýnatökur HSu næstu vikurnar. Mikið mæðir á HSu vegna þeirra verkefna og miklu máli skiptir að sýnataka gangi hratt og vel fyrir sig.
Huga þarf að þeim sem eru í sóttkví
Sóttkví nemenda og starfsfólks telst frá fimmtudeginum 1. október og gefst öllum kostur á að fara í skimun á 7. degi, fimmtudaginn 8. október nk. Þeir sem fá neikvæða niðurstöðu úr skimuninni verða lausir úr sóttkví þegar niðurstaða liggur fyrir.
Það getur reynt mjög á líðan og aðra líkamlega heilsu margra að vera í sóttkví, þetta er þó breytilegt eftir einstaklingum. Fjölskyldusvið Árborgar vill því hvetja foreldra til að nýta tímann vel með börnum sínum. Þeir sem eru í sóttkví mega fara í göngu- og hjólaferðir, fjallgöngu og bíltúr með þeim fjölskyldumeðlimum sem eru einnig í sóttkví, en þarf að sýna mikla aðgát gagnvart öðru fólki. Útivera getur hjálpað til við að stytta daginn, ásamt fjölmörgu öðru sem hægt er að gera saman á heimilinu, líkt og að spila, föndra, baka, fara í útilega í stofunni eða nýta tæknina til að tala við vini og fjölskyldu.
Hjálpum hvert öðru og gerum þetta saman.