Samúðarkveðja til íbúa Blönduóss og Húnabyggðar
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar sendir sínar dýpstu samúðarkveðjur til samfélagsins í Húnabyggð eftir þá vofveiflegu atburði sem áttu sér stað á Blönduósi síðastliðin sunnudagsmorgun.
Við erum harmi slegin yfir þessum fregnum og hugur okkar allra hjá aðstandendum og hlutaðeigendum þeirra sem tengjast þessum harmeik.
Við sendum íbúum öllum hlýjar hugsanir, kærleika og ljós megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum.
Með vinsemd og virðingu
Bæjarstjóri og bæjarstjórn Sveitafélagsins Árborg