Selfossveitur með erindi á opnum fundi Samorku í Hörpunni
Fimmtudaginn 17.nóvember var haldinn opinn fundur í Hörpunni sem bar yfirskriftina „Hugum að hitaveitunni - Er alltaf nóg til?“
Þrjú veitufyrirtæki voru með erindi á fundinum Veitur, Selfossveitur og Norðurorka þar sem farið var yfir stöðu hitaveitumála innan þeirra veitusvæða. Einnig voru erindi frá Orkustofnun og Samorku.