Setning Vinnuskólans í Árborg fer fram fimmtudaginn 6. júní 2019 frá 20:00 – 21:00
3. júní 2019
Setning Vinnuskólans í Árborg fer fram fimmtudaginn 6. júní 2019 frá 20:00 – 21:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla.
Eftirfarandi tilkynning er til verðandi nemenda skólans og foreldra:
Kæri nemandi Vinnuskólans
Þér er boðið að koma ásamt foreldra/forráðamanni á setningu Vinnuskóla Árborgar. Setningin fer fram í Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 6. júní og byrjar kl. 20:00.
Fyrsti vinnudagurinn er svo þriðjudagurinn 11. júni 2019. Fyrsta daginn eiga unglingar á Selfossi að mæta í Félagsmiðstöðina Zelsíuz, Austurvegi 2b (kjallari).
- Árgangur 2005 á að mæta klukkan 08:30
- Árgangar 2004 og 2003 á að mæta klukkan 09:00
- Krakkar á Eyrarbakka og Stokkseyri eiga að mæta fyrir utan grunnskólana á Eyrarbakka og Stokkseyri klukkan 08:30.