Skapandi leikskólastarf í Álfheimum
Faghópur um skapandi leikskólastarf fór í skemmtilega og eftirminnilega heimsókn í leikskólann Álfheima
Heimsóknin hófst með aðalfundi Faghópsins sem Fjóla Þorvaldsdóttir formaður, stýrði
Jóhanna Þórhallsdóttir leikskólastjóri Álfheima fór yfir sögu leikskólans og starfið í heild sinni. Síðan var leikskólinn skoðaður og starfsfólk deilda sagði nánar frá starfinu.
Leikskólinn Álfheimar hefur í tvo áratugi unnið að markmiðum Landverndar og hafa tíu sinnum hlotið Grænfánann og er hann því fyrst og fremst Grænfánaleikskóli með áherslu á útinám.
Faghópurinn fékk að kynnast útungunarvél
Í fyrra fengu börnin á elstu deildinni að prófa að unga út hænueggjum og tókst það ljómandi vel. Ungarnir, sem núna eru orðnir að hænum í hænsnakofa úti í bæ, verpa duglega eggjum og núna eru elstu börnin að reyna að unga út eggjum frá þeim eins og börnin í fyrra. Þetta er geysi spennandi verkefni sem bæði börn og starfsfólk hefur mjög gaman af.
Sjálfbærni í leikskólastarfi
Faghópurinn fékk einnig að heyra af mjög áhugaverðri rannsókn á sjálfbærni í leikskólastarfi sem verið er að vinna að í Álfheimum. Það eru níu starfsmenn sem taka þátt, en Margarita Hamatsu er að vinna að M.Ed. verkefni sínu, sem fjallar um sjálfbærni og tengja hana betur inn í daglegt starf í leikskólanum. Það verður mjög spennandi að lesa niðurstöður Margaritu sem eiga að koma út í október á þessu ári.
Faghópurinn þakkar Jóhönnu leikskólastjóra Álfheima og hennar fólk kærlega fyrir móttökurnar.