Skautasvell í Árborg
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar með dyggri aðstoð Brunavarna Árnessýslu vinna nú að því að útbúa skautasvell á malbikuðu plani við Tryggvagötu/Nauthóla – brettagarðinum okkar.
Brunarvarnir Árnessýslu dæla þar köldu vatni inn á planið og mun kuldatíðin þá koma að góðum notum, vonandi frystir heppilega svo hægt verði að skauta á svæðinu.