Skólasetning skólaárið 2022-2023
Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir þriðjudaginn 23. ágúst 2022
Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir þriðjudaginn 23. ágúst 2022.
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Skólasetning Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fer fram í húsnæði skólans á Stokkseyri. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara. Forráðamenn velkomnir.
Kl. 09:00 Nemendur í 2.- 6. bekk, f. 2015, 2014, 2013, 2012 og 2011
Kl. 11:00 Nemendur í 7. -10. bekk, f. 2010, 2009, 2008 og 2007
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2016) verða boðaðir í viðtöl með umsjónarkennara.
Stekkjaskóli
Kl. 9:00 Nemendur í 2. bekk, f. 2015
Kl. 10:00 Nemendur í 5. bekk, f. 2012
Kl. 11:00 Nemendur í 3.-4. bekk, f. 2013 og 2014
Skólasetning 2.-5. bekkja fer fram í matsal Stekkjaskóla. Eftir stutta samkomu munu nemendur ásamt forráðamönnum hitta umsjónarkennara.
Nemendur 1. bekkjar (f. 2016) verða boðaðir ásamt forráðamönnum með fyrirfram ákveðnu fundarboði.
Sunnulækjarskóli
Kl. 09:00 Nemendur í 1. − 4. bekk, f. 2016, 2015, 2014 og 2013
Kl. 10:00 Nemendur í 5. – 7. bekk, f. 2012, 2011 og 2010
Kl. 11:00 Nemendur í 8. – 10. bekk, f. 2009, 2008 og 2007
Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í Fjallasal en síðan munu nemendur ásamt foreldrum hitta umsjónarkennara.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2016) verða jafnframt boðaðir í viðtöl með umsjónarkennara í skólabyrjun.
Vallaskóli
Nemendur og forráðamenn í 1. árgangi (f. 2016) fá sérstaka viðtalsboðun eins og tíðkast hefur.
Kl. 09:00 2. – 4. árgangur, f. 2015, 2014 og 2013
Kl. 10:00 5. – 6. árgangur, f. 2012 og 2011
Kl. 11:00 7. – 8. árgangur, f. 2010 og 2009
Kl. 13:00 9. – 10. árgangur, f. 2008 og 2007
Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í íþróttahúsi Vallaskóla en síðan munu nemendur hitta umsjónarkennara. Forráðamenn velkomnir.
Skólastjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Stekkjaskóla, Sunnulækjarskóla og Vallaskóla.