Skólastjórastöður í nýjum skólum
Sveitarfélagið Árborg er ört stækkandi sveitarfélag þar sem áhersla er lögð á öflugt skóla- og frístundastarf og góða velferðarþjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldu¬sviðs vinna að því að styrkja heildstæða nærþjónustu við börn, foreldra og skóla.
Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, góð tengsl skóla og skólastiga og skóla¬þróunar¬verkefni sem unnin eru í anda lærdóms-samfélagsins.
Nú er komið að því að opna tvo nýja skóla á Selfossi. Annars vegar leikskólann Goðheima sem áætlað er að opna í mars 2021 og hins vegar nýjan grunnskóla sem opnar haustið 2021. Þar er nafnasamkeppni í gangi. Við höfum þörf fyrir öfluga stjórnendur og munum ráða bæði leikskólastjóra og skólastjóra frá og með 1. janúar 2021. Þeir koma að allri undirbúningsvinnu og faglegu samstarfi í tengslum við opnun skólanna. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem búa yfir leiðtogahæfni og mikilli reynslu og þekkingu á skólastarfi.
Leikskólastjóri Goðheima
Meginverkefni
• Stýra og bera ábyrgð á undirbúningi á stofnun skólans, m.a. ráðningu starfsfólks
• Veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
• Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu sveitarfélagsins og aðalnámskrá leikskóla
Menntun og hæfnikröfur
• Leikskólakennararéttindi áskilin
• Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða kennslu ungra barna er mikill kostur
• Leiðtoga- og skipulagshæfileikar
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Áhugi og hæfni í starfi með börnum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Skólastjóri nýs grunnskóla á Selfossi
Meginverkefni
• Stýra og bera ábyrgð á undirbúningi á stofnun skólans, m.a. ráðningu starfsfólks
• Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
• Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu sveitarfélagsins, skýrslu undirbúningshóps og aðalnámskrá grunnskóla
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræði er mikill kostur
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Þekking á teymiskennslu og sveigjanlegu skólastarfi er mikill kostur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um störfin
Umsóknarfrestur er til 13. september 2020. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/SÍ og FSL. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á stefnu Árborgar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu.Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is Sími 480-1900. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og framtíðarsýn umsækjanda varðandi þróun skólastarfs. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins.