Skólaþing á Eyrarbakka og Stokkseyri | ath breytt dagsetning
Þann 15. mars næstkomandi stendur fyrir dyrum opið íbúaþing um málefni Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES).
Fundurinn verður annar af þremur í samráðsferli við íbúa, starfsfólk, skólabörn og forráðamenn barna í BES, en stefnt er að því að ljúka þessari fundaröð í mars eða apríl.
Óskað er eftir að áhugasamir skrái sig til mætingar þannig að hægt sé að áætla fjöldann og útbúa húsnæðið til samræmis. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir!
Markmið þessa samráðsferlis er að tryggja að sjónarmið allra hagaðila verði höfð til grundvallar þeirri framtíðarsýn sem unnið verður eftir á næstu árum til tryggja skólastarfi BES gott húsnæði og starfsumhverfi, í sátt við samfélagið. Bæjarstjórn leggur sérstaka áherslu á vilja bæjaryfirvalda til þess að nálgast verkefnið með opnum huga. Það er því hvorki um að ræða fyrirframgefnar niðurstöður né heldur að nein lausn sé útilokuð sem stuðlað getur að farsælu skólastarfi í fullri sátt.
Róbert Ragnarsson, ráðgjafi hjá RR ráðgjöf, hefur verið fenginn til að skipuleggja og stýra samráðsferlinu.
Róbert, sem er fyrrverandi bæjarstjóri Grindavikurbæjar, hefur komið að ýmsum sameiningarmálum, þar á meðal sameiningu sveitarfélaga á Austfjörðum í Múlaþing. Hann hefur einnig unnið að fjölmörgum verkefnum fyrir fjölda sveitarfélaga um land allt. Róbert heldur utan um skráningar á íbúaþingið og má finna skráningarhnapp hér að ofan.
Bæjaryfirvöldum er það ljóst að húsnæðismál BES hafa verið ófullnægjandi til langs tíma.
Húsnæðið á Eyrarbakka hefur lengi þarfnast endurbóta og er nú metið heilsuspillandi. Á Stokkseyri er mikil þörf fyrir góða íþróttaaðstöðu en forvinna vegna nýs íþróttahúss hefur staðið yfir síðastliðið ár. Ekki er hægt að bíða lengur með að ráðast í aðgerðir vegna húsnæðismála BES og þær hefjast með ofangreindu samráðsferli. Samtímis því er verið að vinna að tímabundinni lausn og verður hægt að kynna mögulegar leiðir í þeim efnum á fundinum. Fullnægjandi tímabundin lausn verður tilbúin þegar skólastarf hefst í haust.
Auk þess fundar sem hér um ræðir hafa formenn hverfisráðanna á Stokkseyri og Eyrarbakka óskað eftir að opinn íbúafundur verði haldinn á Stað, Eyrarbakka þann 08. mars. Þar mun íbúum gefast kostur á að spyrja bæjarfulltrúa og aðra forsvarsmenn sveitarfélagsins út í öll almenn mál en ekki eingöngu skólamál. Sá fundur er sem fyrr ræðir opinn öllum íbúum á Stokkseyri og Eyrarbakka og hvetjum við alla til að mæta.