Snjórinn kom með hvelli
Það var þá að snjórinn léti sjá sig og það með hvelli. Árla morguns fóru starfsmenn þjónustumiðstöðvar og allir verktakar í vetrarþjónustu á vegum sveitarfélagsisn að ryðja snjó af helstu stofn og tengivegum, eins að stinga í gegn í húsagötum.
Verkefnið er ærið og tekur langan tíma að hreinsa. Íbúar eru beðnir að leggja helst ekki í götunni heldur nota sínar innkeyrslur til auðvelda hreinsun. Sýnum stillingu og þolinmæði við þessar aðstæður.Nú mega jólin koma!