Snjóruðningur innan Árborgar
Unnið hefur verið ötullega að snjóruðningi undanfarna daga innan Árborgar. Að staðaldri eru um 27 vélar að vinna að snjómokstir í Árborg, núna þegar færðin er sem verst hefur verið kallaður út aukaliðsafli í verkefnið og eru nú 32 - 35 vélar að störfum.
Flestar vélar byrja á milli 4 og 5 á nóttunni og hefjast handa við forgangsleiðir.
Nú er unnið að hreinsun í húsagötum og næstu daga fer í áframhaldandi hreinsun og í að fjarlægja hrúgur og þá helst í kringum leik – og grunnskóla, við gatnamót og þröngar húsagötur. Vert er að benda íbúum á að vera ekki að leik á eða við þessar stóru snjórhrúgur þegar unnið er við að moka í hrúgur sem og við að fjarlægja hrúgurnar.
Verkefnið er ærið þegar tíðin er eins og hún er og því þolinmæði íbúa mjög mikilvæg og alltaf er möguleiki á að t.d einhverjir stígar verði teknir seinna sökum forgangs.
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar þakka skilninginn og hvatninguna.