Söfnun jólatrjáa í Sveitarfélaginu Árborg laugardaginn 7. janúar 2023
Frá kl. 10:00 verða jólatrén hirt upp í sveitarfélaginu. Íbúar geta sett jólatrén sín út á gangstétt eða við lóðamörk og verða þau fjarlægð.
Mikilvægt er að trén séu sýnileg frá götu þannig að auðvelt sé að fjarlægja þau
Farið verður af stað í söfnunina um kl. 10:00 laugardaginn 7. janúar og mikilvægt er að trén séu komin að gangstétt/lóðarmörkum fyrir þann tíma.
Körfuknattleiksfélag Selfoss sér um jólatrjáasöfnunina en ekki verður um frekari safnanir að ræða á jólatrjám í sveitarfélaginu þetta árið en einstaklingar geta komið jólatrjánum sínum niður á gámasvæði Sveitarfélagsins Árborgar í Víkurheiði á opnunartíma.
Íbúar eru einnig hvattir til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði en sérstakur gámur verður staðsettur á gámasvæðinu í Víkurheiði til að taka á móti flugeldarusli til og með laugardagsins 7. janúar 2023.
Sveitarfélagið Árborg