Söfnun til styrktar framlínustarfsfólki
VISS, vinnu- og hæfnigarstöð tekur nú þátt í verkefni með Reyni Bergmann (snappara) en hann hefur hrint af stað söfnum til styrktar framlínustarfsfólki okkar sem stendur í ströngu þessa dagana v/COVID-19.
Hlutverk starfsfólks VISS er að setja pappabangsa í umslög sem fólk af öllu landinu hefur keypt á netinu.
Hér fylgir linkur inn á síðu sem hægt er að fara inn á til að taka þátt í styrktarverkefninu. Í þessu flotta verkefni gefur VISS alla vinnu sína.https://parkandfly.is