Sorphirða í vetrarfærð
Starf sorphirðufólks er einkar erfitt viðureignar í veðuraðstæðum líkt og eru nú og má gera ráð fyrir erfiðum aðstæðum næstu daga og mun því sorphirða tefjast að einhverju leyti.
Brýnt er að íbúar moki frá sorptunnum og skýlum svo sorphirðufólk eigi greiðan aðgang að ílátum og þannig geti sorphirða farið fram. Búast má við því að sorphirða fari ekki fram þar sem ekki hefur verið mokað frá ílátum.