Sorptunnutalning við íbúðir í Árborg
Á næstu dögum og vikum munu starfsmenn Árborgar telja fjölda sorpíláta við íbúðir í Árborg.
Sorptunnutalningin hluti af vinnu við breytingar á sorphirðu sem taka mun gildi á næsta ári og er nauðsynleg til að sveitarfélagið hafi uppfærða skrá um magn íláta sem eru í notkun.
Talningin mun í flestum tilfellum geta farið fram án þess að íbúar verði þess varir en í einhverjum tilfellum kann að vera nauðsynlegt að hafa samskipti við íbúa t.d. vegna staðsetningar íláta.
Hægt er að hafa samband ef einhverjar spurningar eru við þjónustuver Árborgar í síma 480 1900