Spennandi lestrarupplifun á vefnum
SKÓLASLIT eftir Ævar Þór Benediktsson er lestrarupplifun sem er öllum opin á vefnum. Sagan byrjar 1. október nk. og endar á hrekkjavöku.
Allir sem áhuga hafa geta tekið þátt í þessu flotta vefverkefni en hugmyndin að því kemur frá kennsluráðgjöfum á Reykjanesi og Ævari Þór.
Skólar eins og þeir leggja sig mega fylgjast með, bekkir eða jafnvel einstaklingar. Aldurinn sem höfundar miða við er miðstig og upp úr.