Starfsdagur Frístundamiðstöðvar Árborgar
Frístundamiðstöð Árborgar samanstendur af fjórum frístundarheimilum, þremur frístundaklúbbum, félagsmiðstöð og ungmennahúsi. Þar starfa um það bil 95 starfsmenn í mismunandi starfshlutföllum.
Þann 22. febrúar síðastliðinn var haldinn starfsdagur Frístundamiðstöðvarinnar.
Markmið starfsdagsins var að finna sameiginleg gildi fyrir starfsemina. Gildi eru lýsandi orð, eða orðasambönd, sem skipta starfsfólk máli að unnið sé að innan veggja starfstöðvanna og hvernig horft sé á starfið utan frá. Þegar gildisvinna fer fram er ekki ákveðið hver gildin eiga að vera heldur er komist að því innan starfsmannahópsins hver gildin raunverulega eru nú þegar. Hópurinn hóf daginn á allskyns hópeflisleikjum og síðan tók við hópavinna, sem leidd var áfram af Tinnu Björk Helgadóttur forstöðukonu Bifrastar, sem snéri að því að starfsfólk finndi þau gildi sem þau töldu lýsa sinni vinnu innan hvers starfstaðar.
Gildin sem urðu fyrir valinu og verða einkunnarorð vettvangs frítímans í Árborg eru
FJÖLBREYTILEIKI
TRAUST
SAMVINNA
GLEÐI
Gaman var að sjá hversu jákvæður hópurinn almennt er og fram komu margar góðar og gagnlegar hugmyndir sem verður unnið með áfram.