Stekkjaskóli varð fyrir valinu
Á 25. fundi fræðslunefndar, sem var haldinn miðvikudaginn 9. september sl., var farið yfir tillögur að nafni á nýja grunnskólanum sem verður stofnaður á næsta ári.
Samtals 26 tillögur bárust og samþykkt var samhljóða að velja nafnið Stekkjaskóli en það er með vísan í götuheiti hverfisins.