Stífla í Þuríðargarði Stokkseyri
Starfsmenn Árborgar fengu ábendingu frá íbúa að tjörn við grunnskólann á Stokkseyri frysi ekki. Eftir nánari skoðun var fyrirtækið Hreinsitækni fengið á staðinn til að skoða fráveitukerfið í námunda við tjörnina, en strax lék grunur á að skólp væri að leka út úr fráveitukerfinu.
Þegar brunnur í tjörninni var opnaður kom í ljós að hann var fullur af fitu og alveg stíflaður upp að loki. Vatni undir þrýstingi var þá dælt ofan í brunninn til að freista þess að losa stífluna, en það var of mikil föst fita í honum og sú aðgerð gekk ekki, þó minnkaði vatnsmagnið í tjörninni eftir þessa aðgerð. Á morgun 23.2.2022 kemur sérhæfður bíll úr Reykjavík frá Hreinsitækni til að losa stífluna og í framhaldinu að mynda kerfið, óskandi er að það gangi upp svo ekki þurfi að dæla skólpi á milli brunna og grafa upp garðinn. Það bendir flest til þess að óhóflegt magn af fitu hafi borist inn i fráveitukerfið og valdið stíflunni. Sveitafélagið vill því nota tækifærið og minna á mikilvægi þess að fitugildrum sé reglubundið sinnt og þær tæmdar eigi þær að skila hlutverki sínu og skv. fráveitusamþykkt Árborgar er húseigendum skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna.