Stjarnfræðilega skemmtilegur sumarlestur
Líkt og undanfarin 32 ár var efnt til sumarlesturs í júní á Bókasafni Árborgar á Selfossi. Þema þessa árs var himingeimurinn og af því tilefni kom Sævar Helgi Bragason rithöfundur í heimsókn og sagði m.a. frá sólmyrkvanum sem verður þann 12. ágúst næstkomandi.

Ímyndunaraflið fékk líka að leika lausum hala og Sigurjón Guðbjartur Jónasson stýrði föndursmiðju þar sem urðu til geimverur og plánetur auk barmmerkja.
Lokadagur sumarlesturs var svo gríðarlega fjörugur og lauk með pompi og prakt í ratleik þar sem reyndi á þekkingu þátttakenda á himingeimnum.
Það eru þær Rakel Sif Ragnarsdóttir og Esther Erla Jónsdóttir, sérfræðingar á Bókasafni Árborgar sem sjá um allan undirbúning sumarlestursins.
Starfsfólk bókasafnsins þakkar öllum kærlega fyrir þátttökuna og hvetur alla krakka á öllum aldri til að halda áfram að lesa og lesa í allt sumar.








