Stoppistöð Strætó Olís Selfossi - ný staðsetning
Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni verður stoppistöð landsbyggðarstrætó færð mánudaginn 11. apríl.
Vegagerðin hefur tekið ákvörðun um að færa stoppistöð landsbyggðarstrætó sem í dag er staðsett við Olís Selfossi yfir á Fossnes (akstursleið Reykjavík - Selfoss) og Breiðamýri (akstursleið Selfoss - Reykjavík).
Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar Selfossi mun færa staura stoppistöðvarinnar mánudaginn 11. apríl 2022 og Strætó bs. sendir út tilkynningu um hið sama á vefsíðu sinni.