Stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi
Út er kominn leiðarvísir á þremur tungumálum um stuðning við virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið fól Móðurmáli – samtökum um tvítyngi að taka saman leiðarvísinn í samstarfi við þá aðila sem best þekkja til á þessu sviði hér á landi.
Leiðarvísirinn byggir á lögum, stefnum og rannsóknum, en einnig reynslu og hugmyndum frá fagfólki og vettvangi og alþjóðlegum viðmiðum. Í honum er fjallað um mikilvægi þess að styðja við virkt fjöltyngi barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi, byggja upp samstarf við foreldra og efla samskipti við börn í daglegu starfi.
Einnig inniheldur leiðarvísirinn ráð, leiðbeiningar og gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra, aðstandendur, kennara og annað fagfólk í leik-, grunn- og framhaldsskólum sem og frístundaleiðbeinendur.
Leiðarvísana má nálgast á vef Móðurmáls.
- Leiðarvísir um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi.
- Informator o wsparciu nauki języka ojczystego i aktywnej wielojęzyczności w szkołach i na zajęciach pozalekcyjnych.
- Guidelines for the support of mother tongues and active plurilingualism in school and afterschool programs.
Sjá einnig frétt á vef Stjórnarráðs Íslands / Mennta- og menningarmálaráðuneytis
