Sumarsmiðjur Zelsíuz fyrir 5.-7.bekk - skráning hafin
22. maí 2019
Félagsmiðstöðin Zelsíuz ætlar að standa fyrir sumarsmiðjum fyrir börn sem voru að ljúka 5. -7. bekk. Smiðjurnar verða í boði frá 11. júní - 12. júlí. Hægt er að skrá sig í stakar smiðjur, heilan dag eða heila viku. Skráning hefst
21. maí í gegnum vefpóstfangið
erna.gudjons@arborg.is Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist og búið er að senda kvittun til staðfestingar.
Verðskrá: Stök smiðja 1.000 kr. Heill dagur 1.500 kr. Heil vika 5.000 kr.
Smiðjurnar má sjá hérna að neðan
Lýsingar á námskeiðum:
Pizzubakstur
Í pizzubakstrinum bökum við pizzabotn frá grunni og fá krakkarnir að spreyta sig í bakarahlutverkinu. Búin er til heimagerð pizzusósa og svo fá krakkarnir að velja sér sín uppáhalds álegg ofan á pizzuna. Borðað er saman í lokin. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 24 krakkar.
Brjóstsykursgerð
Í brjóstsykursgerðinni fá krakkarnir að prófa sig áfram að búa til heimagerða og gómsæta brjóstsykra. Hægt er að velja skemmtilegan lit og gott bragð og búið þá til í öllum stærðum og gerðum. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 24 krakkar.
Ferð á skátasvæðið á Úlfljótsvatni
Í þessari smiðju munum við fara að Úlfljótsvatni þar sem við munum prófa klifurgrindina og leiksvæðið í eigu skátanna. Skemmtileg smiðja fyrir alla sem hafa áhuga á skemmtilegri hreyfingu og útivist Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Sundferð á Borg
Í sundferðinni á Borg verður hægt að fara í hina vinsælu rennibraut og leikið sér. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Vísindasmiðja
Í vísindasmiðjunni munum við prófa alls konar hluti og gera tilraunir saman. Hvað gerist þegar við setjum mentos í kók? Hvernig er hægt að búa til slím? Mjög skemmtileg smiðja þar sem forvitnir vísindaáhugamenn njóta sín í botn. Takmarkað pláss í smiðjuna – 20 krakkar
Skátasmiðja
Í þessari smiðju munum við kynnast skátum og fara í skemmtilega leiki og læra ýmislegt sniðugt. Við munum prófa að klifra í klifurgrind, binda hnúta, kveikja eld og alls kyns skemmtilega hluti. Leynist skáti í þér? Takmarkað pláss er í smiðjuna – 24 krakkar.
Skartgripa og lyklakippugerð
Í skartgripa- og lyklakippugerðinni munum við búa til eyrnalokka, hálsmen, armbönd, lyklakippur og aðra eins smáhluti. Hér fá listrænir tækifæri til að spreyta sig og útbúa alls kyns fallega muni sem hægt verður að taka með sér heim. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 18 krakkar
Smíða- og föndursmiðja
Í smíða- og föndursmiðjunni munum við smíða og föndra fallega muni saman sem hægt verður að taka með sér heim. Krakkarnir fá að spreyta sig til að búa til það sem þeim langar undir leiðsögn smiðjustjóra. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 18 krakkar.
Masterchef Árborg er byggt upp á svipaðan hátt og samnefndir þættir. Þátttakendur fá ákveðin hráefni sem þau fá að nýta eins og þeim einum listir. Klukkan tifar og sá sem stendur uppi með flottasta, frumlegasta og bragðbesta réttinn vinnur Masterchef Árborgar. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 16 krakkar.
The Great Zelsiuz Bake Off
The Great Zelsiuz Bake Off er byggt á vinsælu þáttunum Nailed it, sem er keppni þar sem krakkarnir fá mynd af eftirrétt og þurfa að endurgera hann. Mjög fyndin og skemmtileg smiðja sem allir hefðu gaman af. – 16 krakkar.
Mini Golf keppni á golfvellinum
Míni-golf keppni á golfvellinum: Sett verður upp skemmtileg mini-golf braut fyrir okkur á Svarfhólsvelli. Planið er að hjóla/labba upp á golfvöll frá Sunnulækjarskóla
Sund á Selfossi
Farið verður í sund á Selfossi og leikið sér saman í lauginni. Mjög gaman að fara saman sem hópur í góðu veðri. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 30 krakkar.
Ferð í Slakka húsdýragarð
Ferðin í Slakka húsdýragarð er heill dagur þar sem farið verður að skoða hin ýmsu dýr sem leynast þar, farið á leiksvæðið og spilað minigólf. Við munum borða saman nesti og er áætluð heimkoma fyrir kl 16 þar sem það verður ekki hádegishlé. Takmarkað pláss í smiðjuna. – 24 krakkar.
Minute to win it
Í Minute to win it er notast við þrautir og leiki sem voru í hinum sívinsælu samnefndu þáttum. Sem dæmi um þrautir má nefna Oreo kex þrautina, blýantakastið, bómullþrautin, smartiesþrautin og margt fleira skemmtilegt. Hér fá krakkarnir að upplifa þáttinn sem þátttakendur. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Role Play smiðja
Í Role play smiðjunni er farið í hlutverkaleiki svo sem „Dungeons and dragons“. Þar velja krakkarnir sér karakter sem þau spila með í leiknum við aðra krakka. Í spilinu lenda þau í ýmsum ævintýrum og skemmtilegum aðstæðum. Takmarkað pláss er í smiðjuna. – 16 krakkar.
Hönnunarsmiðja
Í þessari smiðju geta þeir sem hafa áhuga á hönnun spreytt sig í alls kyns sniðugum hlutum. Við munum til dæmis hanna bolinn sem við litum síðan samdægurs í bolagerðinni. Því mælum við með því að skrá sig allan daginn. Hægt verður að prófa sig áfram í ýmsum hlutum til að skreyta herbergið sitt, búa til falleg kerti og ýmis konar skraut sem hægt verður að taka með sér heim. Takmarkað pláss í smiðjuna – 20 krakkar
Bolagerð- Tie Dye
Í bolagerðinni fá allir bol til þess að lita eftir eigin litamynstri og gera ýmislegt fallegt. Allir fá að taka bolinn sinn með sér heim. Takmarkað pláss í smiðjuna – 20 krakkar.
Ferð í Efstadal
Ferðin í Efsta dal er heill dagur þar sem lagt er af stað frá Selfossi um morguninn og keyrt í Efsta dal. Þar munum við skoða fjósið og fara í skemmtilega útileiki saman. Við munum borða nesti saman og fá okkur ís beint frá býlinu. Það verður ekki farið heim í hádeginu heldur farið beint í sund á Borg þar sem krakkarnir geta farið í hina vinsælu rennibraut og skemmt sér eftir degi. Áætluð heimkoma er fyrir kl 16 þar sem það verður ekki hádegishlé. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 24 krakkar.
Listasmiðja
Í lista- og föndursmiðjunni fá listrænir tækifæri til að spreyta sig í alls kyns verkefnum. Krakkarnir fá að spreyta sig til að búa til það sem þeim langar undir leiðsögn listamanns. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Heimsækja lögreglu og slökkvilið
Ótrúlega skemmtileg heimsókn til lögreglunnar þar sem krakkarnir fá að sjá hvernig vinnan þeirra er og fá að vita hina ýmsu hluti sem viðkemur lögreglustarfi. Skemmtileg heimsókn til slökkviliðsins og fá að sjá slökkviliðsbílinn og slönguna. Skemmtilegt fyrir alla sem hafa áhuga á að sjá þeirra starf og hugsanlega með þann draum að verða lögregla eða slökkviliðsmaður/kona í framtíðinni. Takmarkað pláss í smiðjuna – 24 krakkar.
Vatnsstríð
Hið sívinsæla vatnsstríð þar sem vatnsblöðrur, vatnsbyssur, dúkur með nóg af sápuvatni er aðal uppistaða vatnsstríðsins. Ótrúlega skemmtileg smiðja þar sem enginn fer þurr heim. Takmarkað pláss í smiðjuna – 30 krakkar.
Rice Crispies eftirréttagerð
Í rice crispies gerðinni munum við búa til nokkrar útfærslur af hinum gómsætu rice crispies kökum. Krakkarnir fá að æfa sig í bakarahlutverki og fá að fara heim með nokkrar kökur til að leyfa fjölskyldu og vinum að smakka. Allir þátttakendur fá uppskriftir heim svo hægt sé að endurtaka baksturinn aftur. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 16 krakkar.
Ferð í Hveragerði
Eyðum góðum degi í Hveragerði saman. Aparóla, sund og jarðskjálfta hermirinn, fáum okkur og borða og algjört stuð. – 30 krakkar.
Capture the flag
Capture the flag eða fangaðu fánann er skemmtilegur útileikur þar sem skipt er krökkunum upp í tvö lið. Hvort lið hefur það markmið að ná fána hins liðsins án þess að nokkur nái að klukka þau. Ef einhver er klukkaður fer hann í fangelsi þar til hann er frelsaður með klukki frá einhverjum úr sama liði. Við munum spila nokkrar útfærslur á leiknum. Leikurinn hentar öllum vel og skiptir mestu máli að hafa gaman saman. Við mælum með því fyrir áhugasama að skrá sig í heilan dag, þar sem leikirnir eru oft innan sama áhugasviðs. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 30 krakkar.
Hunger Games ævintýri
Hunger Games er mjög skemmtilegur einstaklingsleikur byggður á samnefndri kvikmynd. Hver og einn leikmaður hefur band um hendina sem markar líf hans. Markmið leikmannsins er að ná böndunum af öllum hinum leikmönnunum og standa uppi sem sigurvegari leiksins. Alls kyns hindranir eru á leið hans og hægt að lenda í að ódauðleg skrímsli nái honum eða jafnvel að hann finni aukalíf ef hann missir sitt. Mjög skemmtilegur leikur þar sem krakkarnir fá að spreyta sig sem þátttakendur ævintýrisins. Við munum leika leikinn í Gesthússkógi. Við mælum með því fyrir áhugasama að skrá sig í heilan dag, þar sem leikirnir eru oft innan sama áhugasviðs. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 30 krakkar.
Fléttur, maskar og varasalvagerð
Tilvalin smiðja fyrir þá sem hafa áhuga á því að búa til ýmis konar fallegar fléttur og annað fallegt í hárið, búa til maska sem henta þinni húð og varasalva í skemmtilegum litum. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Fimleika- og danssmiðja
Í fimleika og danssmiðjunni verður farið í skemmtilegar fimleikaæfingar og lært nokkur skemmtileg dansspor og prófað sig áfram. Hægt er að búa til skemmtilegan dans í lokinn með blöndu af fimleikaæfingum og danssporum. Tilvalin smiðja fyrir þá sem hafa gaman af hreyfingu og íþróttum. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Frisbí golf
Í Frisbí golf smiðjunni verður farið í hið vinsæla Frisbí golf á 9 holu vellinum við Gesthús. Þar fá allir að spreyta sig áfram í að miða rétt og hafa gaman af. Skemmtileg smiðja fyrir alla sem hafa áhuga á skemmtilegri hreyfingu og að prófa nýja hluti. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 20 krakkar.
Kajak og sund
Farið verður í ævintýraferð á Stokkseyri þar sem við munum fara á kajak og svo í sund eftir á. Ótrúlega skemmtileg ferð þar sem allir með áhuga á hreyfingu, ævintýrum eða íþróttum hafa gaman af. Takmarkað pláss í smiðjuna – 20 krakkar.
LARP smiðja
Hin vinsæli live action role playing eða LARP. -20 krakkar.
Útileikir
Í útileikjasmiðjunni munum við fara í skemmtilega leiki sem eru hvað vinsælastir utan dyra svo sem 10 skref blindandi, einakrónu, snúsnú, verpa eggjum, 1-2-3-4-5-dimmalimm og lengi mætti telja áfram. Skemmtileg smiðja fyrir alla sem hafa áhuga á skemmtilegri hreyfingu utan dyra. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 30 krakkar.
Sleikjó- og brjóstsykursgerð
Hin sívinsæla sleikjógerð þar sem krakkarnir fá að prófa sig áfram að búa til heimagerða og gómsæta sleikjóa. Hægt er að velja skemmtilegan lit og gott bragð og búið þá til í öllum stærðum og gerðum. Einnig verður hægt að gera brjóstsykur. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 24 krakkar.
Mannlegt fótboltaspil á sparkvellinum
Mannlegt fótboltaspil verður á sparkvellinum við Sunnulækjaskóla. -30 krakkar
Boltasmiðja
Í fótbolta, handbolta og körfubolta smiðjunni verður farið í hinar vinsælu boltaíþróttir sem svo margir hafa gaman af. Við munum prófa okkur áfram með alls konar trikk og skemmtilegheit og skipta svo í lið og spila saman. Takmarkað pláss er í smiðjuna – 30 krakkar.
Lokahátíð
Lokum sumrinu með hvelli, verður auglýst síðar.