Sundhöll Selfoss lokuð til miðvikudagsins 21.október
Komið hefur upp staðfest Covid-19 smit hjá starfsmanni Sundhallar Selfoss og nokkrir starfsmenn farið í sóttkví í kjölfarið.
Í samráði við almannavarnir og til að gæta fyllsta öryggis fyrir aðra starfsmenn og gesti hefur Sundhöll Selfoss því verið lokað fram til miðvikudagsins 21.október.
Lokunin tekur gildi laugardaginn 17.október en vonast er til að hægt verði að opna Sundhöllina aftur nk. miðvikudag eftir að niðurstöður úr skimunum liggja fyrir. Gestum er bent á að sundlaug Stokkseyrar er opin á hefðbundnum tíma.