Sundlaug Stokkseyrar lokuð 28.júní - 2. júlí vegna viðhalds
Sundlaug Stokkseyrar verður lokuð frá mán. 28. júní til lau. 2.júlí vegna viðhaldsframkvæmda í tæknirými laugarinnar.
Til stóð að framkvæmdir yrðu viðameiri í sundlauginni og lokunin því lengri en vegna góðra niðurstaðna úr loftgæðamælingum í húsnæði laugarinnar er hægt að fresta hluta framkvæmdanna fram á vetur.
Stefnt er á að opna aftur laugardaginn 2. júlí á hefðbundnum opnunartíma.