Sveitarfélagið Árborg stendur vaktina í kófinu
Lífsgæði íbúa Árborgar og hamingjuríkt líf þeirra er tilgangurinn með starfsemi sveitarfélagins. Í þeirri vegferð vill sveitarfélagið auðvelda athafnir, stuðla að heilbrigði, vernda hagsmuni og tryggja öryggi.
Þegar aldan ríður yfir skiptir miklu máli að við svífum á öldufaldinum en látum ekki brimskaflinn leggja okkur að velli. Starfsfólk sveitarfélagsins Árborgar mun leggja sitt af mörkum til að við stöndum sterkari sem samfélag.
Eðlilegur fylgifiskur þess að taka erfiðar ákvarðanir, undir tímapressu, er að gera einhver mistök – það má. Mestu skiptir að við hjálpumst öll að, íbúar sveitarfélagsins og starfsmenn þess. Sýnum skilning, biðlund og leggjum hvort öðru til aðstoð og ábendingar. Samstaða er besta sóttvörnin, eins og einhver sagði.
Fátt er betra til að auka hamingju og lífsgleði en að hjálpa öðrum, þetta hafa rannsóknir margsannað.
Starfsfólk í framlínu
Snarráð og lausnamiðuð viðbrögð eru lýsandi fyrir athafnir starfsfólks Árborgar undanfarna daga, líkt og síðasta vetur. Leikskólinn Álfheimar tókst í vikunni á við það verkefni að 20 starfsmenn gátu ekki mætt til vinnu og hafa viðbrögð og upplýsingagjöf skólans verið aðdáunarverð og foreldrar haft orð á því við bæjarstjóra. Skólarnir okkar glíma við risavaxin mál vegna Covid-19 sem starfsfólk hefur einhent sér í með ótrúlega góðu árangri við erfiðar aðstæður.
Sveitarfélagið tekur nú þátt í gríðarstóru verkefni með Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Almannavörnum vegna sýnatöku í Sunnulækjarskóla. Jafnframt er unnið með HSu að því að finna aðra aðstöðu til að auðvelda sýnatökur á næstu vikum, í þágu allra Sunnlendinga.
Margt fleira væri hægt að telja og ég þakka starfsfólki fyrir að sýna styrk og festu í ákaflega krefjandi aðstæðum, nú þegar margir eru í sóttkví og neyðarstig ríkir í landinu.
Viðbragðsstjórn Árborgar mun sjá til þess að stjórnendur og starfsfólk hafi nauðsynleg úrræði og úthald til að sinna störfum sínum. Öryggi starfsfólks og íbúa er forgangsatriði.
Sveitarfélagið stendur sterkt í kófinu
Þó að árið 2020 hafi verið í skugga kófsins þá hefur sveitarfélagið náð miklum árangri og engu þarf að kvíða um getu þess til að takast á við allt það sem að höndum ber.
Fjölskyldusvið
Sú vinna sem Fjölskyldusvið Árborgar hefur unnið í samstarfi við ráðuneytin á þessu ári hefur vakið athygli ráðamanna og ráðherra haft um það orð við undirritaðan. Þar er Árborg í fararbroddi í hraðri framþróun sem miðar að því að taka betur utan um börnin okkar, hvert og eitt. Samstillt vinna fjölskyldu- og fræðsluþjónusta sveitarfélagsins er þar úrslitaatriði og hefur mikill árangur náðst. Stjórnendum deilda hefur tekist að stilla saman strengi og frekari árangur mun nást með markvissri vinnu.
Mannvirkja- og umhverfissvið
Mannvirkja- og umhverfissvið hefur einnig náð mjög góðum tökum á sínum verkefnum sem hafa verið fjölmörg og stór. Engum hefur dulist þær miklu framkvæmdir sem hafa átt sér stað í Árborg í sumar. Mikið hefur verið lagt upp úr því að viðhafa gott skipulag og eftirlit með framvindu verkefna og það hefur skilað sér í hraðari og betri árangri. Fjölmörg verkefni liggja fyrir á næsta ári og má þar t.d. nefna nýjan skóla og langþráðar fráveituframkvæmdir við Ölfusá. Óhætt er að segja að sviðið hafi aldrei staðið sterkara og ekkert verkefni er óvinnandi með styrkri stjórn og góðu skipulagi.
Stjórnsýslusvið
Stjórnsýslusvið Árborgar hefur byggst upp með undraverðum hætti á undanförnum mánuðum. Með ráðningu lögmanns hefur tekist að styrkja stjórnsýslu og persónuvernd ásamt því að ná öruggari tökum í barnaverndar- og skipulagsmálum. Á sviðinu er jafnframt unnið hörðum höndum að stafrænni þróun sveitarfélagsins og uppbyggingu nýrrar upplýsingatæknideildar. Augljósar breytingar má sjá á heimasíðunni og í verkefninu Betri Árborg, en auk þess hafa bæst í vopnabúr starfsfólks fjöldinn allur af hugbúnaðarlausnum og stafrænum tólum.
Stærsta verkefni stjórnsýslusviðs nú í haust er að styrkja og byggja frekar upp skipulags- og byggingardeild og bæta þjónustu við íbúa og annað framkvæmdafólk. Einskis verður látið ófreistað til að sveitarfélagið verði í fremstu röð þegar kemur að því að veita góða þjónustu í skipulagsmálum og kraftmiklir nýir stjórnendur, skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi munu leiða þetta verkefni til lykta með starfsfólki.
Fjármálasvið
Fjármálasvið vinnur nú hörðum höndum að því að bæta upplýsingagjöf til forstöðumanna og stýra endurbættri greiningu á frávikum í fjárhagsáætlun. Með þessu munum við tryggja að skattfé borgaranna nýtist sem best til að veita fjölskyldum sveitarfélagsins góða þjónustu.
Mannauðsdeild
Mannauðsdeild hefur stýrt jafnlaunavottun sveitarfélagins af festu og við erum nú í fremstu röð. Niðurstöður úr starfsmannakönnun Maskínu, sem lögð var fyrir alla starfsmenn sveitarfélagsins árin 2018 og 2019 hefur nýst vel við úrbætur og stefnumótun um jafnrétti, vinnuvernd, líðan og álag í starfi, starfsþróun, samskipti, ráðningar og almenn gildi/framtíðarsýn. Reglulegar mælingar gera stjórnendum kleift að skoða þróun allra þátta sem mældir eru og meta orsakir og nauðsynlegar úrbætur. Framundan er að stýra styttingu vinnuvikunnar og þó að Covid-19 geti truflað vinnuna þá hleypur tækifærið ekki frá okkur að leita snjallra leiða til að stytta vinnudaginn, minnka álag og auka gleði í starfi og einkalífi.
Saman getum við allt. Þannig vinnum við!