Þakkir til íbúa frá Selfossveitum
Kæru íbúar,
Selfossveitur vilja þakka góð viðbrögð við síðustu hvatningu um að spara heitt vatn.
Heitavatnsnotkun varð minni en venjulega í síðasta kuldakasti sem má rekja til tillitsemi íbúa þegar kemur að notkun á heitu vatni. Takk fyrir!
Nú er kalt í veðri og framundan frostakafli sem ekki sér fyrir endann á fyrr en eftir helgina. Því hefur viðbragsáætlun Selfossveitna verið virkjuð aftur og eins og áður er hluti af henni að hvetja íbúa til að huga að sínum enda hitaveitunar og fara sparlega með vatn.
Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á. Þá skipta einnig máli stillingar ofna, að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum.
Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurftafrekir á vatnið og gott að hafa í huga að fara sparlega með neysluvatn eins og við uppvask og böð ( sturtur,baðkör ).