Þjónustusamningur Svf. Árborga og Hestamannafélagsins Sleipnis endurnýjaður
Sveitarfélagið Árborg hefur endurnýjað þjónustusamning við Hestamannafélagið Sleipni og gldir nýr samningur út árið 2024.
Það voru Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, formaður Sleipnis sem undirrituðu samninginn í nýja félagshesthúsinu. Samningurinn felur í sér föst verkefni sem hestamannafélagið hefur sinnt undanfarin ár líkt og sumarnámskeið, umsjón með viðrunarhólfum og þátttaka í viðburðum í samfélaginu.
Sú nýjung er í samningnum að sveitarfélagið styrkir nýtt verkefni félagsins sem er félagshesthús. Verkefnið snýst um að börn hafa núna tækifæri til að kynnast hestamennsku án þess að þurfa að eiga til þess einhvern búnað. Geta greitt ákveðið gjald og fengið að læra reiðmennsku og allt sem þarf að hugsa um við umhirðu hestsins. Mjög spennandi verkefni sem hófst í haust og hefur farið vel af stað.
Á myndinni eru auk Gísla og Sigríðar þau G. Linda Björgvinsdóttir, formaður æskulýðsnefndar Sleipnis, Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi og Tómas Ellert Tómasson, formaður eigna- og veitunefndar. Einnig eru myndir innan úr félagshesthúsinu sem er hið glæsilegasta.