Þrjú hundruð hjóluðu KIA Gullhringinn
Þrjú hundruð þátttakendur hjóluðu KIA Gullhringinn. Veðrið lék við þátttakendur og skipuleggjendur.
Um það bil þrjú hundruð þátttakendur hjóluðu í KIA Gullhringnum laugardaginn 1. júlí en þá fóru fram keppnir í lengri hringjum Gullhringsins.
Keppt var í tveimur flokkum og sigruðu þau Davíð Jónsson HFR Alvogen og Silja Jóhannesdóttir HFA (Hjólreiðafélag Reykjavíkur) A flokkinn.
Það var alþjóðlegur bragur á efstu stæum B flokksins en það voru þau Teing Ko frá Bretlandi og Tomasz Prokopiuk frá Pólandi sem komu fyrst í mark þar. Einnig var hægt að taka þátt í Samhjólaflokk þar sem ekki var tekinn tími heldur hjólað til skemmtunar og á sunndeginum, klukkan 11:00, er það fjölskylduhringur BYKO og KIA Gullhringsins hjólaður sem er 12 km hringur sem er hjólaður á samhjóls forsendum, engin tímataka og endað í grillveislu í boði SS og Coca Cola við BYKO í lok keppni.
Þetta er í 12 sinn sem KIA Gullhringurinn er haldin en hann var hjólaður frá Laugarvatni fyrstu níu árin en var svo fluttur í Selfoss sumarið 2021 en þaðan er hjólað um Flóahreppa og í gegnum Stokkseyri og Eyrabakka og endað í nýja miðbænum á Selfossi.
Einmuna veðurblíða var í flóanum á laugardeginum og fram á kvöld, logn og þrátt fyrir að það hefði verið skýjað rigndi ekkert á þátttakendur í brautinni sem verður að teljast afbrigðilegt veðurfar miðað við sumarið í ár.
Myndir: Mummi Lú
A flokkur kvenna
- Silja Jóhannesdóttir HFA
- Júlía Oddsdóttir Breiðablik
- Kristín Edda Sveinsdóttir HFR Alvogen
A flokkur karla
- Davíð Jónsson HFR Alvogen
- Kristinn Jónsson HFR Alvogen
- Joppe de Heij Team Sensa
B flokkur kvenna
- Teing Ko
- Sunneva Ósk Pálmarsdóttir
- Sigþruður Blöndal
B flokkur karla
- Tomasz Prokopiuk
- Reynir Guðjónsson Tindur
- Kristján Sigfús Einarsson