Þróunarverkefni í Sveitarfélaginu Árborg hlaut styrk úr Íslenskusjóðnum við Háskóla Íslands
Markmið þróunarverkefnisins er að bjóða foreldrum grunnskólanema með fjölmenningarlegan bakgrunn í Sveitarfélaginu Árborg upp á ókeypis íslenskunámskeið.
Anna Katarzyna Wozniczka, doktorsnemi og verkefnastjóri í málefnum flóttamanna hjá Sveitarfélaginu Árborg, Aneta Figlarska, kennsluráðgjafi í fjölmenningu hjá Sveitarfélaginu Árborg, og Anna Linda Sigurðardóttir, deildarstjóri Fjölmenningardeildar í Vallaskóla, hljóta styrk til verkefnisins „Hagnýtt íslenskunámskeið fyrir foreldra barna með fjölmenningarlegan bakgrunn á grunnskólaaldri: Þróunarverkefni í Sveitarfélaginu Árborg.“
Sjá nánar um úthlutun styrkja úr Íslenskusjóði
allar myndir: Gunnar Sverrisson