Tilkynning frá Selfossveitum
Enn er kuldaboli að minna á sig og lítur út fyrir að það verði mjög kalt fram í vikuna.
Kæru íbúar
Við viljum því enn og aftur hvetja alla til að fara vel með heita vatnið og fara eins sparlega með það og hægt er.
Ljóst er að á meðan þessi kuldatíð varir verður skert þjónusta í tildæmis sundlaugar og íþróttamannvirki þar sem varmi til húshitunar er í fyrsta forgangi
Staðan er síðan metin hvort þörfs sé á að herða eða slaka á aðgerðum en reynt er að hafa þetta sem sársaukaminnst fyrir íbúa. Með þessum aðgerðum hefur gengið vel að tryggja varma til húshitunnar og allt útlit fyrir að svo verði áfram ef ekki koma upp bilanir.
Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á.
Þá skipta einnig máli stillingar ofna, að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum.
Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurftafrekir á vatnið og gott að hafa í huga að fara sparlega með neysluvatn eins og við uppvask og böð (sturtur, baðkör).