Tilkynning frá Sjóðnum góða í Árnessýslu
Umsóknir og úthlutanir úr Sjóðnum góða 2021
- Hægt verður að sækja um á netinu á þar til gerðu umsóknarblaði. Senda þarf tölvupóst á sjodurinngodi@gmail.com og óska eftir að fá umsóknarblað sent. Útfyllt umsóknarblaðið ásamt fylgigögnum skal senda á sama netfang sjodurinngodi@gmail.com .
- Á umsóknardögum verður hægt að hringja í síma 840 4690 , 840 4691 , 840 4692 og sækja um símleiðis. Aðeins er tekið við umsóknum í síma á auglýstum umsóknartíma.
- Þau sem ekki geta sótt um rafrænt eða símleiðis geta komið á umsóknardögum í Selið, Engjavegi 48 (við íþróttavöllinn).
Umsóknardagar eru:
Mánudagur | 22. nóvember | kl. 10:00 - 12:00 |
Þriðjudagur | 23. nóvember | kl. 16:00 - 18:00 |
Miðvikudagur | 24. nóvember | kl. 10:00 - 12:00 |
Mánudagur | 06. desember | kl. 16:00 - 18:00 |
Með umsókn þarf að senda / fylgja eftirfarandi gögn
- Allar tekjur okt. eða nóv. (Vinnulaun, tekjur frá Tryggingastofnun, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur.)
- Öll útgjöld okt. eða nóv. (leiga,afborganir lána og húsnæðis, rafmagn/hiti ,úgjöld v.barna tryggingar ofl.)
Vinsamlegast virðið þessar dagsetningar og athugið að ekki er tekið við umsóknum eftir síðasta umsóknardag, hvorki rafrænt né í síma. Síminn er eingöngu opinn á auglýstum umsóknartíma.
Hægt verður að nálgast úthlutanir 15. og 16. desember kl. 16:00 - 18:00 í Selinu, Engjavegi 48 (við íþróttavöllinn).