Tilkynning frá þjónustumiðstöð - Snjómokstur þriðjudaginn 20. desember 2022
Staðan í dag kl. 9:00 er sú gular veðurviðvaranir eru í gildi til kl. 23:00. Aðalleiðir frá Selfossi og á milli byggðarkjarna og í dreifbýli eru opnar en mikill skafrenningur er á flestum leiðum.
Austurhólar og austasti hluti Suðurhóla að Gaulverjabæjarvegi verða lokaðir þar til veður gengur niður.
Snjómokstur á Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyri verður miðaður við að halda stofnleiðum og safngötum opnum og að tryggja snjómokstur við skóla og leikskóla. Mokstur í íbúðargötum verður í lágmarki á meðan veðrið gengur yfir.
Verið er að útvega stórvirk tæki til að nota við snjómokstur í dreifbýlinu. Mikill skafrenningur gerir snjómokstur erfiðara um vik þegar það skefur jafn óðum og mokað er. Stefnt er að því að snjómokstur þar verði komin í gang þegar líður á daginn.
Gámasvæði í Víkurheiði er lokað í dag þar sem veðurhæð er enn mikil og mikill snjósöfnun á gámasvæðinu. Stefnt er að því að opna á morgun, miðvikudag.
Sveitarfélagið er með um 30 tæki í snjómokstri eins og staðan er. Um er að ræða eigin tæki og verktaka. Unnið er að því að fá fleiri stórvirk tæki í vinnu.
Hægt er að senda inn ábendingar um snjómokstur á ábendingagátt Árborgar á þessari slóð:
Vakin er athygli á að upplýsingar um snjómokstur og vetrarþjónustu er á heimasíðu Árborgar og á vef Vegagerðarinnar.
https://www.arborg.is/ibuar/samgongur/vetrarthjonusta/
https://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/sudvesturland-faerd-kort/