Tilkynning frá þjónustumiðstöð - Snjómokstur fimmtudaginn 22. desember 2022
Staðan í dag kl. 10:00 er sú að tekist hefur að opna flestar götur og botnlanga á Eyrarbakka.
Gríðarlegur snjór er á Eyrarbakka og mjög erfitt að athafna sig við mokstur og hreinsun gatna
Í dag á að leggja áherslu á að breikka götur þar og moka snjó í burtu þar sem hægt er að koma honum frá sér. Hafa verið 5 - 6 tæki í mokstri á Eyrarbakka síðustu tvo daga.
Á Stokkeyri er verið að breikka götur og lagfæra og hafa verið 2 - 3 tæki í þeim mokstri. Lokið var að mestu við mokstur í dreifbýlinu í gær.
Á Selfossi er verið er að moka burtu snjó og var unnið í alla nótt við mokstur af Austurveginum
Lögð verður áhersla á að moka útúr öðrum hverfum í dag og að blása burtu snjó þar sem hægt er að koma því við. Einnig er verið að vinna að mokstri gönguleiða og er búið að opna gönguleiðina yfir Ölfusárbrú. Það eru um 10 vörubílar í að aka burtu snjó.
Þá hefur borið á því snjó sé mokað á gönguleiðir af einstaka lóðum. Þetta er óheimilt með öllu og viljum við biðja íbúa um að bæta þar úr og láta keyra burtu snjó hjá sér ef þeir koma honum ekki fyrir innan eigin lóðar.
Við þurfum öll að sýna tillitssemi og það gengur ekki að ganga á rétt gangandi fólks.
Þá viljum við þakka íbúum fyrir þeirra þolinmæði
Verkefnið er stórt. Götur í snjómokstri Árborgar eru um 140 km og göngustígar sem stefnt er að snjómokstri á eru um 60 km. Til viðbótar koma svo bílastæði við stofnanir og vegir sem eru mokaðir í helmingamokstri á móti Vegagerðinni.