Tilkynning frá þjónustumiðstöð | Snjómokstur föstudaginn 30. desember 2022
Staðan í dag kl. 12:00 er sú að allar götur eru færar bílum sem útbúnir eru til vetraraksturs.
Verið er að breikka götur og moka snjó í burtu þar sem hægt er að koma honum frá sér. Unnið hefur verið að mokstri og að blása snjó í dreifbýlinu til að losna við snjórastir. Þá er verið að breikka á Eyrarbakka og hreinsa í kringum skólann til að búa í haginn fyrir væntanlega skólabyrjun í janúar. Mikið átak var í snjómokstri á Stokkeyri á með þátttöku Vegagerðarinnar, Þjónustumiðstöðvar og verktaka af hálfu Árborgar.
Þá er verið að blása og moka snjó af gönguleiðum og er víða orðin það mikill snjór að ekki er hægt með góðu móti að moka stíga með öðrum hætti.
Snjómokstur um áramót er með þessum hætti af hálfu Sveitarfélagsins Árborgar:
- Á gamlaársdag er mokað til kl. 15:00 á öllum aðalleiðum ef þörf er á
- Á nýársdag er mokað ef þurfa þykir
Þá er rétt að ítreka að ef ekki er hægt að koma snjó af lóðum fyrir innan lóða þurfa húseigendur að láta keyra honum í burtu á sinn kostnað.
Áfram er búist við vetrarfærð og úrkomu næstu daga og má gera fyrir að það hafi verið á milli 20-30 tæki sem hafa verið í snjómokstri á vegum sveitarfélagsins síðustu daga.
Hægt er að senda inn ábendingar um snjómokstur á ábendingagátt Árborgar á þessari slóð:
Vakin er athygli á að upplýsingar um snjómokstur og vetrarþjónustu er á heimasíðu Árborgar og á vef Vegagerðarinnar.
https://www.arborg.is/ibuar/samgongur/vetrarthjonusta/
https://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/sudvesturland-faerd-kort/