Tilkynning frá þjónustumiðstöð - Snjómokstur miðvikudaginn 21. desember 2022
Staðan í dag kl. 9:30 er sú að veðrið er að mestu gengið niður en það er búið að vera samfelld úrkoma og svo skafrenningur síðan á föstudagskvöld.
Snjómokstur á Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyri er á fullu. Mikill snjór er í götum og eru þær víða þröngar og ljóst að það tekur nokkra daga að moka og hreinsa snjó á öllu svæðinu. Til að hægt sé að brekka og laga í götum þurfa bílar að vera inni í innkeyrslum. Einnig er nokkuð um að yfirgefnir bílar séu á götum og eru viðkomandi hvattir til að fjarlægja þá sem fyrst.
Snjómokstur Árborgar miðað að því að hreinsa götur og gönguleiðir en íbúar og fyrirtæki sjá sjálf um að hreinsa bílastæði og heim að húsum. Sumstaðar geta verið háir ruðningar meðfram lóðum og bílastæðum og þurfa íbúar að sjá um að moka og opna inná sín bílastæði.
Fengin voru stórvirk tæki til að nota við snjómokstur í dreifbýlinu. Verið er að moka í Tjarnarbyggð og Byggðarhorni ásamt Votmúlavegi. Stefnt er á að hreinsa heim að sem flestum heimilum eftir því sem aðstæður leyfa.
Gámasvæðið í Víkurheiði er opið. Þá er sorphreinun framundan og verða íbúar að moka snjó frá tunnum svo hægt sé að komast að þeim og losa þær.
Sveitarfélagið er með hátt í 40 tæki í snjómokstri eins og staðan er. Um er að ræða eigin tæki og verktaka.
Hægt er að senda inn ábendingar um snjómokstur á ábendingagátt Árborgar á þessari slóð:
Vakin er athygli á að upplýsingar um snjómokstur og vetrarþjónustu er á heimasíðu Árborgar og á vef Vegagerðarinnar.
https://www.arborg.is/ibuar/samgongur/vetrarthjonusta/
https://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/sudvesturland-faerd-kort/