Tilkynning um breytingar á vinnuskólanum 2023
Vinnuskóli Árborgar hefst þann 12 júní næstkomandi og hefur það að markmiði að veita nemendum uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi.
Áhersla er lögð á að starfsumhverfið sé hvetjandi
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar fyrir vinnuskólann árið 2023. Þær breytingar eru meðal annars að í sumar verður í boði vinna fyrir þau ungmenni sem eru að klára 9. og 10. Bekk.
Ýmsir vinnuhópar verða í boði ásamt því að hægt er að sækja um þátttöku í skapandi sumarstörfum
Félagsmiðstöðin Zelsíuz mun halda úti hópastarfi fyrir nemendur sem eru að klára 7. og 8. bekk.
17+ hópurinn verður ekki starfræktur sumarið 2023 en unnið er að því að finna sértæk úrræði fyrir einstaklinga með fatlanir.
Opnað verður fyrir skráningar í vinnuskólann þann 17. apríl næstkomandi og fer skráningin fram í gegnum Völu. Nánari upplýsingar koma um það síðar.