Tilkynning v. atviks
Sveitarfélagið Árborg harmar að starfsmannamál leikskólans Álfheima hafi ratað í fjölmiðla og vill því koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri.
Eftir starfsmannaferð starfsmanna leikskólans Álfheima sem farin var 6. - 7. maí sl. bárust stjórnendum leikskólans upplýsingar sem taldar voru þess eðlis að rétt væri að virkja verkferla samkvæmt stefnu Árborgar gegn einelti, áreitni og ofbeldi.
Utanaðkomandi fagaðili var fenginn til þess að annast skoðun málsin. Skoðun málsins er nú lokið og þeir starfsmenn sem voru í leyfi á meðan skoðun málsins fór fram munu hefja aftur störf á leikskólanum.